Landflokkur er eining sem heldur utan um allan mannskap Björgunarsveitarinnar sem starfar á landsviði. Innan landflokks starfa sérhæfðir hópar sem allir starfa mestmegnis á landi. Þeir eru sjúkrahópur, leitarhópur og straumvatnshópur.

Einstaklingar innan þessara hópa eru þó engan vegin bundnir landflokk, heldur geta þeir einnig starfað með öðrum flokkum. Formaður landflokks hefur yfirumsjón með þjálfun og endurmenntun einstaklinga innan landflokks.